17.05.2007 20:38:49 / geitinn
Í gær fórum við í mikla grillveislu hjá strfsfólki Kaupþings og
Sýslumanns, þetta var bara nokkuð mikil gleði sem fór þó vel fram
og fólk hvorki sagði eða gerði neitt sem á erindi á þessa síðu.
Annars er ekkert að frétta hér nema hvað Eva er lasin í dag en
verður vonandi fljót að hrista það af sér.
»
15.05.2007 22:40:50 / geitinn
Haldið þið ekki að ég hafi fundið gamla bloggsíðu sem ég hef
ekki skoðað lengi, en við frekari skoðun reyndist það vera míns
eigins síða.
Þar sem ég hef ekkert skrifað síðustu daga hlítur fólk að gera
sér grein fyrir að sitt hvað hefur á daga mína drifið en þó er
ekkert sem ég hef sérstaklega mikla þörf fyrir að deila með fólki.
En fyrst ég er búin að grafa upp síðuna og lykilorðið þá kannski
skrifa ég eitthvað á næstu misserum.
»
16.12.2006 08:00:41 / geitinn
Þá erum við flutt og alllt orðið í mestu rólrgheitum eða þannig, ég
var að dunda í flísalógn og ímsu smálegu til kl 2 í nótt og fekk
því ekkert í skóinn. Helga sá samt ástæðu til vakna um kl 6í morgun
og sit ég því með ormunum mínum og reini að horfa á teiknimindir
»
17.11.2006 15:28:36 / geitinn
Enn er Helga Guðrún með einhverja hitavellu og ég komin með
bullandi hor, annnars er stefnan tekin á málingu um helgi svo að ég
verð að taka kvöldið í það að losna við kvefið með öllum tiltækum
ráðum og kemur þá koníak og neftóbak sterklega til greina.
Konan verður þá bara að vera oná til að fá ekki tóbakið í augun .
»
16.11.2006 10:04:43 / geitinn
Þetta er aldeilis lífleg vika hjá okkur, á mánudaginn var
leikskólinn lokaður og ekki fór ég í vinnuna en á þriðjudaginn var
Eva María slöpp svo að hún fór ekki á leikskólann, í gær var hringt
frá leikskólanm um kl. hálf 12 og Helga komin með hita og hún var
alveg hundveik í alla nótt þannig að við erum bara heima í dag, en
hún er nú heldur að hressast og ég held jafnvel að hún sé að verða
hitalaus.
Við vorum að flota gólfinn á Sunnubrautinni í gær og mér sýnist að
það geti allt farið á fullt í málningu þar um helgi ef allir verða
hressir.
Þakka barnapössurunum fyrir vel unnin störf í gær. Vonandi verður
næsta vika í eðlilegri skorðum en þessi annars fer nú útlegðin hjá
húsmóðurinni að verða búin þannig að heimilislífið fer að komast í
fastar skorður aftur.
»
11.11.2006 12:44:41 / geitinn
Ég var að borða pulsu með rabbabarasultu og sinnepi. Þeir sem þora
eru hér með hvattir til að prufa það, þetta er bara nokkuð gott og
það passar að setja 2 mjóar línur úr svona sprautubrúsa eins og
sultan er seld í.
»
08.11.2006 20:49:38 / geitinn
Þá er nú þessi vika eð verða búin og allt hefur nú gengið nokkuð
vel, stelpurnar eru á leikskólanum til 4 og þá fara þær gjarnan til
ömmu á eftir þannig að ég get unnið næstum því fullan vinnudag. ég
er reyndar í húsverkunum á kvöldin þannig að kanski er hægt að
segja að ég vinni fullan vinnudag.
Í gær þegar við komum heim eftir góða máltíð á Mýrarbrautinni voru
stelpurnar eitthvað lúnar og Helga grenjaði svolítið mikið og
þurfti alla mína athygli en Eva var ekki alveg sátt við að ég hlypi
ekki til og tæki bleiuna um leið og hún vildi svo að hún reyndi að
vera dugleg sem hún er nú alltaf og tók bara af sér bleiuna
sjálf.
En viti menn í henni leyndist kúkur og henni fanst það ekki
geðslegt frekar en mér, en þetta bjargaðist nú alltsaman eins og
venjulega.
Í dag er nú annars nokkuð stór dagur í mínu lífi og hef ég beðið
eftir þessum áfanga um hríð.
En í dag gerðist sá merkilegi atburður að ég kúkaði í fyrsta skipti
á Sunnubrautinni, og kom það nú bara nokkuð vel út nema hvað lyktin
dreifðist um húsið vegna þess að enn vantar að klára veggi og loft
og engar eru nú hurðarnar ennþá. Svo kom það skemmtilega á óvart að
þar sem maður situr á dolluni þarf maður ekki nema rétt aðeins að
halla sér til hliðar til að geta fylgst með umferðinni eftir
götunni.
»
02.11.2006 20:19:22 / geitinn
Heimilishaldið gengur bara nokkuð vel þessa dagana þó ekki sé nú
mikið um steikurnar á bænum og þvottavélin gengur nú ekki alveg
stöðugt.
stelpurnar voru báðar á leikskólanum í dag svo að ég gat unnið
aðeins og svo er von á ömmuni í heimsókn á eftir þannig að kanski
kem ég einhverju í verk niðurfrá .
Við feðginin fengum okkur gæludýr þegar við vorum orðin ein í
kotinu, það er svon lítill og ansi laglegur köttur sem er stungið í
innstungu uppi á vegg og gefur frá sér svona hátíðni hljóð sem á að
halda músum frá húsum. Annars hefur ekkert gengið með haustverkin
en eins og Unna bventi á þá er eg ekki alveg á réttum tíma með
þetta. Kannski get ég bara búið til sultu úr
útsæðiskartöflunum.
»
27.10.2006 22:54:47 / geitinn
Ég veit ekki hvað hefur komið fyrir mína gullfallegu bloggsíðu en
þegar ég rakst hér inn í kvöld, fyrir tóma tilviljun, þá mætti mér
einhver helblá og að mér sýnist nokkuð drykkfeld geit, held barasta
að ég verði að ræða þetta við útlitshönnuðin.
Annars er svo sem ekkert að frétta síðan siðast nema kannski það að
ég brá mér til Skandinavíu ásamt minni ágætu fjölskiydu þar sem við
fórum til dæmis í ammæli hjá teingdakallinum en hann varð 75 ára um
daginn. Eins og nærri má geta þá gekk frekar lítið í
byggingaframkvæmdum á meðan.
Í næstu viku fer svo kella til Reykjavíkur til að læra þessi helstu
handtök við blaðaútgáfu þannig að það verður höfuðlaus her hérna
næsta mánuðin eða svo, börnin á náttfötunum, nagandi frónkex alla
daga og ég að reyna að brasa í haustverkum svo sem að taka slátur
gera sultu, kæfu, rúllupiysu og setjeitthvað í súrt.
Svo er það nú blessaður jólaundirbúningurinn.
Kannski að ég þurfi að fá mér vinnukonu, ég sem er nú ekki
einusinni farin að setja niður kartöflurnar.
Annars held ég nú að þetta blessist nú allt saman.
Að lokum vil ég nú benda á að kella er farin að blogga líka og það
er tengill á hennar síðu hérna einhverstaðar.
Takk fyrir og göða nótt.
»
23.09.2006 22:12:28 / geitinn
Er þá ekki kominn tími til að blogga .
Eins og fólk hefur kanski tekið eftir þá eru nokkrir dagar liðnir
frá síðasta bloggi, það má kannski segja að ég hafi haft í mörg
horn að líta upp á síðkastið.
Byggingaframkvæmdir hafa nú tekið allan minn frítíma og jafnvel
hluta af svefntíma líka. Nú eru komnar allar grindur í milliveggi
og plötur á nokkra þeira, raflögnin komin í allt nema bílskúrinn og
allir að standa sig nema píparinn en það gengur eitthvað illa hjá
honum að klára sitt en ég er nokkuð vongóður um að hann mæti á
morgun.
»
26.07.2006 22:24:12 / geitinn
Sumir blogga á hverjum degi en ég er að reyna að gera það í hverjum
mánuði þar sem ég þikist nú hafa nóg annað að gera. annars gengur
nú allt sinn vana þessa dagana , en fyrir þá sem það ekki vita þá
er ég farin að vinna fulla vinnu sem launamaður hjá öðrum og er auk
þess að byggja þannig að það gerist nú ekki mikið annað þessa
dagana.
»
25.06.2006 22:01:58 / geitinn
Þá er komið að því að blogga en það hefur staðið til lengi en
ekkert orðið af því. Eins og flestir geta eflaust sagt sér þá hefur
ansi margt gerst frá því að ég bloggaði síðast en einhvernvegin
detttur mér ekker íhug tl að skrifa. Byggingaframkvæmdir ganga
eitthvað og svo hef ég aðeins verið í ruslinu líka en um helgina er
ég búin að vera að dunda í að koma klæðninguni utaná veggina en þó
er valla hægt að seija að ég sé byrjaður á því.
»
24.05.2006 20:34:02 / geitinn
Nú er allt að gerast í byggingaframkvæmdunum, það er búið að smíða
veggjagrindur og í dag vorum við að klæða þær. Kannski hef ég að
reka ljósmyndarann út í kvöld og get þá set inn myndir en lofa samt
engu fyrr en á morgun.
Annars varð ég fyrir árás í dag þegar einn smiðurinn skaut mig af
færi með naglabyssu en hann hélt því nú fram að það hefði verið
alveg óvart (en það er nú sennilega vegna þess að hann er í
frammboði) ekki varð þó stórtjón á mér en ég fékk þó lítilsháttar
sár á legginn .
Ɛȏ疰ѐ义ⵇ䥒䡇㩔〠㜮瀵㭴倠䑁䥄䝎䰭䙅㩔〠㜮瀵㭴倠䑁䥄䝎䈭呏佔㩍〠㜮瀵㭴倠䑁䥄䝎吭偏›⸰㔷瑰※䕈䝉呈›㤴㤮瑰
»
21.05.2006 00:46:47 / geitinn
Fyrir þá sem ekki hafa skoðað myndirnar er eitthvað að gerast á
sunnubrautinni, hef varið mest af mínum tíma þar þessa vikuna og er
farið að sýnast að það sé farið að styttast í reisugillið,
En þið sem ekki hafið skoðað nyndirnar væri kannski ráð að
kíka.
»
12.05.2006 22:41:01 / geitinn
Í dag var ég kona, eða ég fékk það allavega á tilfingunna þegar ég
fór í búð og verslaði fyrir fullt af peningum sem var þó allt á
krít.
Ég var sem sagt að kaupa timbur og fleira sem er kannski ekki mjög
kvennlegt vegn þess að ég gat ekki án þess verið.
Annars ekkert að frétta og ekki meiri kallremba í dag .
»
Síður:
1 2 3 4